Ástey....

barnið vex en brókin ekki

16.01.2008 13:17:35 / ástey

myndir myndir myndir myndir myndir myndir

Ég er alltaf að setja inn nýjar myndir á myspace...  www.myspace.com/asteyg fullt af skemmtilegum myndum og endilega kíkið og skoðið..:D

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 12:42:18 / ástey

leiðinleg síða veiiii

vá hvað þetta er innantóm og leiðinleg síða..:O vil benda fólki á www.myspace.com/asteyg  þar set ég allar myndirnar mína og svona ef ég nenni... er samt ekkert að skrifa mikið þar sko...

En prófin eru byrjuð,.. ég er búin að taka íslensku 503 og heimspeki 103 það gekk mjöööög vel þrátt fyrir mismikin lærdóm!!  en já á morgun er munnlegt frönsku 203 próf og á miðviku daginn skriflegt.. svo á föstudeginum er síðasta prófið enska 503 sem ég býst við að verði laaaaang erfiðasta prófið.. en já því meira sem maður lærir því blablabla og svo framvegis..

En jólin nalgast ekki nema 15 dagar í þetta.. ég fer heim á föstudaginn 14 þá eru ekki nema 10 dagar í jólin.. mig hlakkar voðalega mikið til..

Ég er búin að gefa Arnari Kára jólagjöf..:D gaf honum síma kallinum svo hann geti hringt í mig í jólafríinu.

En já við segjum þetta bara gott þá, skelli inn einni mynd eða svo..:D

hahahha svoldið fyndin mynd erum búin að stilla okkur vel upp.. arnar og sigrún ástfangin og ég að drepa sigrúnu með augunum

en ég segji bara gleðileg jól.. býst ekkert við því að blogga meir fyrir jól...:D

kv. Ástey jólaálfur

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 10:21:53 / ástey

hahahah voða fyndið

Vá ég tók eitthvað tröllapróf sem mamma benti mér á og sjáið hvað kom útúr því...

Stjórnmálaþurs
Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.
Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið.
Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann
bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir
á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins
eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir
hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra.
Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er
í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því
blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.

Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það
er komið gat á þá gömlu... sem skósmiðurinn
segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit
hvar Guðsteinn er með verslun.
 Ég er svona líka hrifinn af stjórnmála mönnum hahaha..:D
kv. Ástey


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 10:32:24 / ástey

Geggjað á blítt og létt og balli og allt

lentum í öðrusæti á blítt og létt.. veiiiii:D aðeins meira rúst. það var líka geggjað á balli.. ég reyni að setja myndir inn seinna...:D en ég nenni ekki að skrifa meir bæ

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 10:55:23 / ástey

hæhæ

Hæbb ... ég er á lífi...:D lítið að gerast hjá mér bara.. er búin að vera að eyða pening eins og mofo....:S ver bad..:O en allaveganna það eru bara nokkrir dagar.. já ég sagði dagar í jólaprófin8| sheeeet... það verður unaðslegt að komast heim til sín í jólahlaðborðið fjúff...:haha: hvað mig hlakkar til..:P

En svona á döfinni hjá mér er bara á morgun er blítt og létt þar sem ég og stelpurnar og garðar erum með atriði.. ég ætla nú samt að hryggja ykkur með því að segja að ég er ekki að syngja..:D hehe:$ ég er dansari sko..:P En það verður rosalegt stuð.. já og svo er náttfatadagur á föstudaginn og náttfataball um kvöldið váááá hvað það verður ógeðslega sjúkt gaman....er að farast úr spenningi. ef einhvern langar til að koma þá verður hann bara að hringja í mig eða bara tala við mig og ég set hann á gestalista ( eða það er að segja þá sem eru ekki í ml)

En já eins og ég segji þá hlakkar mig mjög mikið til að komast heim..

kv. Ástey


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 10:14:40 / ástey

j´amie la vie

vúhú...:D er í heimspeki tíma.. veit ekki hvað ég á að skrifa..  Uhmmm ... það var löng helgi hjá okkur um helgina.. s.s. frí föstudag og mánudag..Ég gerði lítið annað en að spila rommý alla þessa daga...:D við Guðbjörg sátum tímunum saman að spila rommý...:) Ofur stuð.. en annars bara þá var mikil slökun í gangi.  Í morgun aftur á móti vaknaði ég kl 06.07 til að fara í Fit Pilates kl 6.30 niðrí íþrótta húsi.. það var ótrúlega gaman og ég er orðin gegggjað Fit eftir þennan tíma.. við rúlluðum okkur á bolta í klukkutíma og það tók furðulega mikið á. Hlakka til að mæta aftur en segji það gott í bili.

Tvær mynd svona uppá gamanið

 þetta er Fit Pilates

svona verður maður eftir svona tjaa.... 2-3 tíma..:D:lol:

 kv. Ástey Alba

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 08:49:49 / ástey

Tuð og væl..:D

Vá hvað ég er tóm... hef lítið annað að segja en hvað mig langar ótrúlega mikið til útlanda.  Ég er sko að deyja.. það er svona smá pælingur í gangi.. er hrædd um að það verðu samt ekkert úr því.. Svo er Arnar Kári að fara til þýskalands strax eftir páskafrí. bðvöö... búhú. Mér er svo kalt á íslandi... þegar manni er kalt verður maður þá ekki að fara á ströndina og dekra við sig í Karabískahafinu. Jæja læt það duga í bili:

Mynd af ströndinni á bænum Cabarete í Dóminíska Lýðveldinu: Karabískahafið

kv. Ástey


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 17:20:58 / ástey

hæ hó

What is up? Er nú bara hér til að segja ykkur frá miklu afreki mínu. Ég bjó mér til myspace síðu..:D vííí... En ég ætla samt ekki að hætta að blogga hér.. ónei... hin er bara svona svo ég geti verslað í gegnum myspace...:D voða voðalega sniðugt allt saman. En hérna það er semsagt www.myspace.com/asteyg því að einhver ANNAR VAR BÚIN AÐ STELA ASTEY... var frekar pirruð. en já svo erum við að fara á tónleika í kvöld á Rauðahúsinu hjá henni Stellu okkar. Hjómsveitirnar eru Royal Fortune og Rökkurró. Vona að það blessist allt saman..;) En segji það gott í bili, er að hamast við að gera eitthvað við krullurnar mínar bæbæ:D

kv. Ástey:$


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 09:11:42 / ástey

búin að smala

jæja þá er búið að smala og gekk það bara með ágætum..:D það var mjög gaman og Arnar Kári stóð sig frábærlega. en ég er líka búin að setja inn fult af myndum af myndum frá þessu og það er innná myndasíðunni minni udnir nýjar myndir held ég.. annars þið finnið þetta..:D ætla að setja inn eina flotta af mér og uppáhaldinu mínu.

kv. Ástey og Kleópatra


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 17:36:20 / ástey

Smölun

Hæhæ.. langaði aðeins að segja ykkur frá því sem ég gerði um síðustu helgi. Ég fór semsagt í útivistaferð sem ég átti eftir að taka síðan í fyrra. Þetta var um 18 km ganga upp með Laxárgljúfrunum. Það var mjög fallegt og skemmtilegt. Svo áttum að fara með rútu þegar við vorum búin að labba þetta og upp að skálanum. Rútuferðin átti að taka svona hálftíma - 3 korter. Hún endaði með 5 klukkutímum því við festumst svo oft á leiðinni. og við tæplega 40 krakkar þurftum að standa útí kuldanum og myrkrinu meðan dráttarbíllinn og Pálmi reyndu að losa rútuna..:D en já þetta var mikið ævintýri.

En um næstu helgi eða á fimmtudaginn þá erum við Arnar að fara heim í sveitina mína..:D Jább það er komið að því að smala núna og við ætlum bara að taka okkur nokkra daga í þetta. Förum semsagt á fimmtudagskvöldið og komum ekki aftur á Laugarvatn fyrr en á þriðjudagskvöldið. Þetta verður rosa fjör. Ætlum að reyna að hitta eins marga og við getum.þetta er hún Dorrit Kleopatra mín og annað lambið hennar. Sjáið hvað þær eru líkar?

Jájá og svo gengur allt bara mjög vel hér hjá mér.. Er á fullu í átakinu mínu.. vona að það sé að virka eitthvað þó svo að ég stórlega efist um það:( en þetta er gott endilega kvittið fyrir ykkur

kv. Ástey smali:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 14:43:38 / ástey

18. september 2007

jæja gott fólk:D

Ég hef hérna smá úr sögu lífs míns.

þennan dag, 18. september árið 2006, semsagt akkúrat fyrir ári síðan.. eignaðist ég kærasta...  Hann heitir Arnar Kári Guðjónsson og er ég svo heppin að vera enþá með honum í dag. Þannig að í dag erum við búin að vera saman akkúrat í ár. Fjúff... í blíðu og stríðu eða hvað???8|

haha já.. en ég vona að þetta endist hjá okkur miklu fleiri ár. en svona í tilefni dagsins á maður þá ekki að skella einni mynd eða hvað?

 

jább við 2 í góðum gír í partýi heima hjá Bigga. Arnar voða sætur að syngja eitthvað..

en já þetta er gott í bili, yfir og út

kv. Ástey alsæla:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 11:15:11 / ástey

loksins loksins..

Heyriði ... ég er hérna komin með fínt blogg eða spurningar sem ég myndi vilja allir sem koma inná þessa síðu myndu svara..:D  takk fyrir..:D

1. Hefuru slegið einhvern í andlitið?

2. Hve gamall/gömul ertu

3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ?

4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?

5. Dreymir þig á nóttunni?

6. Hefuru séð lík?

7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?

8. Ertu að fíla Gogga Bush? Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffinu.

9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega?

10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því. Hvað myndi það vera?

11. Treystiru lögreglunni?

12. Hlustaru á kántrí?

13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér?

14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera?

15. Myndiru deita mig?

16. Í hverju sefuru?

17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda?

18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ?

19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag?

20. Hvað finnst þér best um mig?

21. Er ég hot?

22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn?

23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera?

24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig.

25. Muntu endurpósta þessu svo ég geti svarað þér?

Bara copy paste í comment bara ..:D


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 19:14:22 / ástey

menntaskólinn að laugarvatni

JÆJA þá er maður komin á vatnið og búin að hitta flesta...:D það er voða gaman. Eins og margir vita þá lendi ég í því að verða busuð núna á 3 árinu mínu í menntaskólagöngunni þar sem ég var nýnemi í ml í fyrra en missti af busuninni. Þannig að ég verð tekin fyrir núna. veiii..:D en ætli ég verði ekki aðeins líflegri með bloggið núna eftir að skólinn byrjar..

kv. Ástey busi


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 18:22:28 / ástey

Halló

hæbb.. ætla að fara stuttlega yfir það sem ég hef að segja.

* Það var gaman á Bubbu

* Það var mjög gaman að hitta alla aftur á Bubbu

* Er að vinna á Flúðum í samkaup

* Mér finnst ótrúlega gaman að fara á hestbak og er búin að fara á hestbak uppáhvern einasta dag síðan hestarnir komu heim.

* Ég er komin með bílpróf

* Arnar Kári er kominn með bílpróf

* Við erum að fara út að borða og í bíó með Árna Ben og Guðrúnu Karítas

* Endilega tjáið ykkur um málið

 

kv. Ástey ofurbloggari..:D

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 19:56:59 / ástey

já halló?? þekkið þið mig enþá?

Halló... svolítið langt síðan ég bloggaði... Mér finnst líka fátt leiðinlegra en að sitja í tölvunni í sólinni svo maður notar bara rigningadagana sem eru ekki búnir að vera margir. Já en ég er bara búin að verað vinna og vinna og vinna. Fór á Flúðir í heimsókn um síðustu helgi og það var rosa fjör. Svo er Arnar Kári að koma til mín um næstu helgi.

Ég er fallin fyrir hesti.. eða hryssu þar er að segja.. sem mig langar alve ótrúlega til að kaupa. Þarf að ráðfæra mig við móður og föður. Held að þetta sé bara fjarstæðir draumórar að halda að ég geti átt þessa kolsvörtu 7 vetra hryssu..:D en já svona er lífið.

Já við Elín erum búnar að vera rosa duglegar að fara berbakt á hestbak.. Erum núna búnar að vera 2 einar heima þessa helgina og fátt annað gert en að éta nammi og fara á hestbak. Svo í gærkvöldi bauð Þórhallur okkur í mat og eldaði svona líka ótrúlega góða hamborgara. Svo bauð Darius okkur að kíkja í heimsókn og við kíktum og spiluðum langt fram á nótt. það var ótrúlega gaman. Svo voru það bara hestarnir sem komust að í dag.

um við afrekuðum líka á þessum langa tíma sem ég er ekki búin að blogga að fara á sjómannadagshelgi á patró sem verður seint gleymd. Rosa fjör þar eins og alltaf. Ég er búin að taka bílprófið þannig að ég bara keyri eins og brjáluð manneskja það sem ég þarf að komast. En já ég blgga kannski aftur eftir svona mánuð.. veriði bara dugleg við að reka á eftir mér þa kannski nenni ég því:D hahaha okay síjú

kv. Ástey sem langar að eignast hest:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11